| Forsíða | Brunavarnir | Vörur | Köfun | English | |
| Slökkvibúnaður | Ýmsar eldhættur | Eldvarnir fyrirtækja | Farartæki og sumarhús | Jól og áramót | Tenglar |
|
Farartæki og sumarhús
|
|||
|
|
![]() Hér á þessum síðum eru upplýsingar um eldvarnir í bílum, bátum, húsvögnum og sumarbústöðum. Það er gaman að gleyma áhyggjunum á sumrin og ferðast um og búa í sumarbústað eða húsvagni en það þarf samt líka að huga að eldvörnum á slíkum stöðum. Í sumarbústað er t.d. ástæða að hafa slökkvitæki og tilbúna flóttaáætlun engu síður en í heimahúsum því umgengni við opinn eld er stundum jafnvel meiri í sumarbústöðum en heimavið. Hér er líka að finna umfjöllun um grill; bæði kolagrill, gasgrill og einnota grill. Það er ekki hættulaust að grilla og árlega verða eldsvoðar og brunasár afleiðing grillnotkunar. En það er hægt að koma í veg fyrir slíkt með því að fara gætilega. Einnig er umfjöllun um hættu á sjálsíkviknun vegna málunar. Á sumrin fara menn gjarnan að huga að viðar- og fúavörn grindverka, sólpalla og viðarveggja. Því er ástæða til að minna á að sjálfsíkviknun getur orðið í tuskum sem notaðar hafa verið til að bera olíu á yfirborð úr tré. Smelltu á tenglana til vinstri til að fræðast meira um þessi mál. |
||
| Slökkvitækaþjónustan ehf. - Bakkabraut 16, 200 Kópavogi - sími: 564-1433 - fax: 564-2650 - email: kolsyra@kolsyra.is |