Hleðsla á slökkvitækjum. slökkvitæki, köfunarvörur, reykskynjarar, brunaslöngur, kolsýrutæki, dufttæki, gallar, froskalappir, brunavarnir, eldvarnarteppi
Northern Diver Slökkvitækjaþjónustan leggur áherslu á góða þjónustu og selur vandaða vöru á hagstæðu verði. Þú ert velkomin(n) til okkar að Bakkabraut 16, Kópavogi. Síminn er 564-1433 og faxnúmerið er 564-2650 og ef þú vilt senda okkur tölvupóst er póstfangið: kolsyra@kolsyra.is

Opnunartímar: Mánudaga til fimmtudaga 8-17 og föstudaga 8-15.
Hér er kort sem sýnir staðsetningu okkar.
Slökkvitækjaþjónustan býður samninga um árlegt eftirlit með slökkvibúnaði og öðru er viðkemur eldvörnum. Sérþjálfaðir starfsmenn okkar fara í fyrirtæki og stofnanir þar sem þeir yfirfara þann slökkvi- og eldvarnabúnað sem um er samið. Einnig geta viðskiptavinir komið með handslökkvitæki sín til okkar á Bakkabrautina þar sem til staðar er sérþjálfað og viðmótsþýtt starfslið. Þjónusta okkar við húsfélög, fyrirtæki, skipafélög, útgerðarfélög og sveitarfélög er landsþekkt og fyrirtækið veitir góða þjónustu bæði fljótt og vel. Sértu í leit að faglegri þjónustu þá hafðu samband við okkur.

Slökkvitækjaþjónustan hefur vottun frá Det Norske Veritas og Lloyds Register og Siglingamálastofnun Íslands varðandi skoðun á slökkvibúnaði í skipum og reykköfunartæki og slökkvitæki.
Einnig vottun frá Brunamálastofnun Íslands um slökkvibúnað.

Við bendum á að á þessum vef er mikið safn upplýsinga um brunavarnir fyrir almenning. Smelltu á tengilinn Brunavarnir hér að ofan til að lesa þér til um mismunandi tegundir slökkvitækja og um það hvernig best er að haga eldvörnum á heimilum, í fyrirtækjum, sumarbústöðum, bílum o.s.frv. áður en þú tekur ákvörðun um kaup á slökkvitækjum og öðrum vörum til eldvarna.

Fullkomin laser tækni í kennslu

Slökkvitækjaþjónustan ehf. býður upp á kennslu í meðhöndlun á hand- slökkvitækjum, notað er hátækni kennslutæki og kennslumyndband.

BullsEye kennslutækið er háþróað laser tæki með stafrænum LED loga og Laser slökkvitæki. Hægt er að nota BullsEye innandyra. BullsEye getur líkt eftir öllum gerðum af slökkvitækjum á hreinlegan, öruggan og haghvæman hátt og þjálfun getur farið fram í hinu raunverulega starfsumhverfi.

Sjá nánar í myndskeiði hér: BullsEye Video
Slökkvitækaþjónustan ehf. - Bakkabraut 16, 200 Kópavogi - sími: 564-1433 - fax: 564-2650 - email: kolsyra@kolsyra.is