| Forsíða | Brunavarnir | Vörur | Köfun | English | |
| Slökkvibúnaður | Ýmsar eldhættur | Eldvarnir fyrirtækja | Farartæki og sumarhús | Jól og áramót | Tenglar |
|
Eldvarnir í fyrirtækjum
|
|||
|
Meiri upplýsingar:
Eldhættur í fyrirtækjum
Eldvarnir í fyrirtækjum
Viðbragðsáætlun
Fræðsla starfsfólks
Tékklistar
|
![]() Eldsvoði í fyrirtæki er dýrkeyptur jafnvel þó að allar tryggingar séu í lagi. Ef illa fer greiðir trygging gegn rekstrarstöðvun aðeins það allra brýnasta. Líklega gera fæstir sér grein fyrir afleiðingum eldsvoða og þess þegar vinnustaður brennur og starfsemi þar stöðvast eða ef einhver örkumlast eða lætur lífið vegna ónógra brunavarna. Líkur á gjaldþroti eru miklu meiri en líkur á góðu gengi eftir hugsanlega enduruppbyggingu. Misjafnt er hvernig fyrirtæki eru í stakk búin til þess að bregðast við rekstrarstöðvun vegna bruna. Jafnvel „minniháttar“ eldsvoði og tilheyrandi reykskemmdir geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Ef fyrirtæki er með allan rekstur á einum stað eru mestar líkur á að gjaldþrot fylgi í kjölfar rekstrarstöðvunar vegna bruna. Hvers vegna? Ekki er hægt að framleiða upp í gerða samninga. Nýhafin auglýsingaherferð skilar engu þar sem ekkert er til að selja auk þess að greiða þarf fyrir hana. Viðskiptavinir geta ekki beðið eftir vörum, finna aðrar samskonar eða jafnvel betri hjá samkeppnisaðilum og þeir skila sér tæplega til baka. Hæfasta starfsfólkið fer að vinna fyrir samkeppnisaðila og „leyndarmál“ fylgja stundum með. Atvinnutækifæri hverfa úr byggðarlaginu, fólk flytur jafnvel burt í kjölfarið ef enga vinnu er að hafa. Á þessum síðum er fjallað nokkuð um eldhættur og eldvarnir í fyrirtækjum og fræðslu starfsfólks og viðbragðáætlun. Þessu umfjöllun er tekin að mestu leyti orðrétt úr ágætri grein eftir Jón Pétursson í fríblaði Sambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og úr fræðslu á http://www.healthandsafety-jobs.co.uk Smelltu á tenglana til vinstri til að lesa þér nánar til um þessi mál. |
||
| Slökkvitækaþjónustan ehf. - Bakkabraut 16, 200 Kópavogi - sími: 564-1433 - fax: 564-2650 - email: kolsyra@kolsyra.is |