Hleðsla á slökkvitækjum. slökkvitæki, köfunarvörur, reykskynjarar, brunaslöngur, kolsýrutæki, dufttæki, gallar, froskalappir, brunavarnir, eldvarnarteppi
 
 
Ýmsar eldhættur

 
Eldhættur

Eldur kviknar oft af aðgæsluleysi og vegna þess að vaðúðarráðstöfunum er ekki sinnt.

Hér á þessum síðum er fjallað um ýmsa algenga áhættuþætti og hvernig er hægt að draga úr eldhættu með því að vera á varðbergi og gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir.

Smelltu á tenglana til vinstri til að lesa þér nánar til um hætturnar og hvað þú getur gert til að bæta eldvarnir hjá þér.

Hér fyrir neðan er styttri listi um nokkra algenga áhættuþætti á heimilum:

Rafmagnseldar

Alls konar rafmagnstæki eru inni á heimilum og þau geta orsakað bruna t.d. vegna ofhitnunar eða rangrar notkunar. Ef þú finnur grunsamlega lykt eða heyrir hljóð frá rafkerfinu er ráðlegt að leita til rafvirkja. Það er alltaf best að fagmaður sjái um að gera við leiðslur og raftæki.
Að öðru leyti eru það frekar einföld ráð sem þarf að fylgja til að minnka líkur á að það kvikni í út frá rafmagni. Slökkvið alltaf á sjónvarpinu með aðalrofanum frekar en fjarstýringunni. Látið ekki þvottavél, uppþvottavél eða þurrkara vera í gangi meðan þið sofið eða þegar þið farið að heiman. Þurrkið ekki föt á rafmagnsofnum eða slíku. Venjið ykkur á að taka brauðrist og straujárn úr sambandi eftir notkun. Fáið ykkur lekastraumsrofa.

Kerti og opinn eldur

Margir eldsvoðar verða út af logandi kertum sem gleymast. Setjið kertin ekki of nálægt gluggatjöldum eða ofan á sjónvarpið. Notið aðeins kertastjaka úr óbrennanlegum efnum s.s. gleri, keramik eða járni. Notið ekki kertastjaka úr tré. Venjið ykkur á að fara aldrei frá herbergi með logandi kertum. Slökkvið á þeim fyrst. Börn hafa alltaf verið forvitin um eld. Það er þess vegna mikilvægt að börn læri að umgangast eld á eðlilegan hátt. Reynið aldrei að gera börn hrædd við eld - það eykur bara forvitnina. Skiljið börn aldrei eftir ein hjá logandi kertum eða opnum eldi.

Reykingar

Mörg dauðsföll vegna bruna verða af völdum reykinga. Það er ekki bara hættulegt að reykja í rúminu. Það er líka hættulegt að sofna út frá sígarettu í hægindastól eða sófa. Gott ráð til að minnka líkur á bruna er að bleyta innihaldið í öskubakka áður en hann er tæmdur.

Brunahættur í eldhúsinu

Marir eldsvoðar eiga upptök sín á eða við eldavélina. Pottur sem gleymist á eldavél er algeng orsok bruna. Fita og olíur byrja að brenna við háan hita og einnig tólg. Farðu þess vegna varlega í það að skilja eitthvað eftir sjóðandi á eldavélinni þegar þú ferð út úr eldhúsinu. Það getur verið gott að vera með tímarofa sem rýfur strauminn til eldavélarinnar og kaffivélarinnar. Það er líka gott ráð til að minka brunahættu í eldhúsinu að halda eldhúsviftunni eins hreinni og mögulegt er. Það kviknar nefnilega auðveldlega í fitu og sóti.

Vörur sem eldhætta stafar af

Vökvar eins og bensín, terpentína, steinolía og grillvökvi eru mjög eldfimir og slíkt þarf að geyma í viðeigandi ílátum á stöðum þar sem börn ná ekki til. Kveikið á grilli og slíku með grillvökva. Notið aldrei bensín eða terpentínu. Fleygið aldrei úðabrúsa á opinn eld. Hann getur sprungið með miklum krafti. Gas er mjög eldfimt og þarf að meðhöndlast af mikilli varúð. Skrúfið vandlega fyrir kranann þegar ekki ekki er verið að nota gasið. Ef þú notar gas í t.d. bátnum eða húsvagninum er mikilvægt að athuga tengingar, ventla og slöngur oft og tryggja að slíkt sé óskemmt.

Íkveikjur

Íbúðahverfi verða oft fyrir barðinu á íkveikjum. Besta leiðin til að koma í veg fyrir slíkt er að geyma ekki eldfimt efni í stigagöngum eða öðrum stöðum sem auðvelt er að komast að. Það er líka mikilvægt að háaloft, kjallari og bílskúr séu læst og að lýsingin þar sé í lagi. Þetta gerir þeim erfiðara um vik sem vilja kveikja í.

Slökkvitækaþjónustan ehf. - Bakkabraut 16, 200 Kópavogi - sími: 564-1433 - fax: 564-2650 - email: kolsyra@kolsyra.is