Hleðsla á slökkvitækjum. slökkvitæki, köfunarvörur, reykskynjarar, brunaslöngur, kolsýrutæki, dufttæki, gallar, froskalappir, brunavarnir, eldvarnarteppi
 
 
broskall
Northern Diver

Brunavarnir

Ef þú þarft að kaupa þér slökkvitæki, reykskynjara, eldvarnarteppi eða aðrar vörur til eldvarna en hefur ekki hugmynd um hvaða tegund er best að kaupa þá geturðu lesið þér til um það hér. Hér er fróðleikur um mismunandi tegundir elda og hvernig slökkvitæki virka best á hverja tegund.

Þú getur séð hvað er best að nota til eldvarna á heimilum, fyrirtækjum, sumarbústöðum, bílum, húsvögnum og bátum og hvernig á að bregðast við ef eldur kemur upp.

Hér er líka hægt að sjá hvaða eldvarnir þarf að hafa að lágmarki (eftir aðstæðum) og hversu oft þarf að yfirfara slökkvitæki, reykskynjara og annan búnað.

Þegar eldur kemur upp er mikilvægt að allir geti komist út úr húsinu. Gerið flóttaáætlun fyrirfram svo allir viti hvernig þeir eiga að bregðast við ef kviknar í.

Hér eru líka meðal annars leiðbeiningar varðandi raflagnir, brunavarnir í eldhúsum, eldhættu af arineldum og kamínum og gasi og eldvarnir fyrir jól og áramót.

Mest af þessum upplýsingum er fengið af öðrum íslenskum og norrænum vefsíðum. Margt er tekið orðrétt frá Brunamálastofnun, Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Neytendastofu en margar aðrar vefsíður hafa verið hafðar til hliðsjónar til að draga saman sem mest af gagnlegum upplýsingum um eldvarnir fyrir þá sem þurfa að kaupa slíka vöru.

Slökkvitækaþjónustan ehf. - Bakkabraut 16, 200 Kópavogi - sími: 564-1433 - fax: 564-2650 - email: kolsyra@kolsyra.is