| Forsíða | Brunavarnir | Vörur | Köfun | English | |
|
Slökkvitækjaþjónustan leggur áherslu á góða þjónustu og selur vandaða vöru á hagstæðu verði. Þú ert velkomin(n) til okkar að Bakkabraut 16, Kópavogi. Síminn er 564-1433 og faxnúmerið er 564-2650 og ef þú vilt senda okkur tölvupóst er póstfangið: kolsyra@kolsyra.is Opnunartímar: Mánudaga til fimmtudaga 8-17 og föstudaga 8-15. Hér er kort sem sýnir staðsetningu okkar. Slökkvitækjaþjónustan býður samninga um árlegt eftirlit með slökkvibúnaði og öðru er viðkemur eldvörnum. Sérþjálfaðir starfsmenn okkar fara í fyrirtæki og stofnanir þar sem þeir yfirfara þann slökkvi- og eldvarnabúnað sem um er samið. Einnig geta viðskiptavinir komið með handslökkvitæki sín til okkar á Bakkabrautina þar sem til staðar er sérþjálfað og viðmótsþýtt starfslið. Þjónusta okkar við húsfélög, fyrirtæki, skipafélög, útgerðarfélög og sveitarfélög er landsþekkt og fyrirtækið veitir góða þjónustu bæði fljótt og vel. Sértu í leit að faglegri þjónustu þá hafðu samband við okkur. Slökkvitækjaþjónustan hefur vottun frá Det Norske Veritas og Lloyds Register og Siglingamálastofnun Íslands varðandi skoðun á slökkvibúnaði í skipum og reykköfunartæki og slökkvitæki. Einnig vottun frá Brunamálastofnun Íslands um slökkvibúnað. Við bendum á að á þessum vef er mikið safn upplýsinga um brunavarnir fyrir almenning. Smelltu á tengilinn Brunavarnir hér að ofan til að lesa þér til um mismunandi tegundir slökkvitækja og um það hvernig best er að haga eldvörnum á heimilum, í fyrirtækjum, sumarbústöðum, bílum o.s.frv. áður en þú tekur ákvörðun um kaup á slökkvitækjum og öðrum vörum til eldvarna. |
|
Tilkynningar |
|
Köfunarvörur
Við seljum margs konar vörur fyrir þá sem leggja stund á köfun. Smelltu á tengilinn Köfun hér fyrir ofan til að skoða hluta af því úrvali sem við höfum að bjóða fyrir kafara. |
|
Þjónusta við kafara:
Eftirlit og viðgerðir á öllum algengustu gerðum köfunarbúnaðar, og reykköfunartækja. Þrýstiprófun og hleðsla á loftkútum. Höfum öflugan, tölvustýrðan prófunarbekk fyrir öndunarbúnað, sem skrifar út niðurstöður um virknina. Hægt er fá kúta þrýstiprófaða án hleðslu ef óskað er eftir því og hægt að semja um magnafslátt á þrýstiprófun. |
| Slökkvitækaþjónustan ehf. - Bakkabraut 16, 200 Kópavogi - sími: 564-1433 - fax: 564-2650 - email: kolsyra@kolsyra.is |